Hemmi Gunn á afmæli í dag.
9.12.2010 | 19:00
Í morgun 9.desember, á afmælidegi móður minnar og Hemma Gunn, birti ég á "bloggi" mínu, fyrstu kaflana í skáldsögunni Trúður-metsölubók. Kaflarnir heita Forleikur að bók og Helvítið hann Hermann Grutzen. (sjá færslu hér að neðan) Formála bókarinnar er síðan að finna í færslu frá því gær.
Þetta er gert til gamans og vonandi hafa einhverjir gaman að lestrinum, og geta þá bent á síðuna til handa þeim sem þeir telja að vilji lesa um ævintýri rithöfundarins, Guðmundar Þórs.
Á næstu dögum og vikum mun bókin birtast, smám saman á blogginu mínu.
Ég hef oftsinnis verið spurður að því hvort um raunveruleika sé að ræða í skrifum mínum. Ég svara því til að raunveruleikinn sé oft merkilegri en skáldskapurinn. Að því sögðu vil ég nefna það í beinu framhaldi að allt sem í bókinni gerist, hefur gerst í raunveruleikanum.
Til að fá skáldlega fjarlægð á raunveruleikann er oft gott að setja hann í umbúðir. Í þessu tilfelli eru umbúðirnar "Skáldsaga" sem í fyrsta hluta þríleiksins gerist í þorpi á Suðurlandi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.